Jæja, mér og strákunum gengur allt í haginn, enn sem komið er.
Ég er farinn að taka við símhringingum og sms-um þar sem fólk er að
biðja mig vinsamlegast um að halda áfram að blogga á leikdegi
og spá fyrir um framvindu mála, það eru greinilega fleiri en ég
haldnir hjátrú, eða hafa trú á minni hjátrú. Einn sem vissi til
þess að ég kemst ekki á Netið nema í vinnuni, og þ.a.l get ég ekki
bloggað um helgar, þannig að hann bauð mér bara að koma heim til
sín um helgina svo ég gæti bloggað um Slóveníu og Þjóðverja leikina
gaman að þessu...
Já í gær voru það Túnisar, ég sagði að bæði lið kæmu grimm inní
fyrstu 10 mín og það var rétt, Túnisar þó skrefi á undan, voru
marki yfir eftir 10 mín. Eftir 20 mín voru þeir reyndar komnir 5
mörkum yfir, en þá hugsaði ég líka, nú er slæmi kaflinn búinn og
við náum þeim. Verst að ég get ekki bloggað á meðan á leikjunum
stendur, þannig að þið verðið bara að hringja ef þið þurfið innsýn
í framtíðina
Ég man að ég skrifaði líka að strákarnir þyrftu að
sýna skynsemi, og svarið þeirra var: Ein sókn í
einu - eitt mark í einu. Ísland skoraði úr 9
sóknum í röð í seinni hálfleik, bara hægt og rólega og voru ekkert
að flýta sér. Var líka með það rétt að Túnisar skoruðu 30 mörk
og Ísland jahh, þeir skoruðu allavega þrjátíu og eitthvað, endaði
líka á sléttri tölu 
Pólverjar í dag kl.17.30... Pólska töpuðu í gær
fyrir fúlum Frökkum með 9 marka mun, en voru einu marki yfir í
hálfleik, skoruðu svo ekki nema 10 mörk í seinni hálfleik.
Pólverjar unnu samt heimamennina á mánudaginn, sjálfa Þjóðverja í
úrslitaleik um hvort liðið hefði með sér 2 stig í milliriðla þannig
að ekki má vanmeta þá.
Ég spái því að Ísland vinni þennan leik. Ég var
búinn að skrifa hér aðeins lengra um að ég héldi að þetta yrði sama
sagan og í gær, Ísland undir í hálfleik, en vélin færi í gang í
seinni og við myndum vinna með 5-8 mörkum. En svo kom það alltíeinu
yfir mig. Ég sé það fyrir mér að Ísland nái yfirhöndinni um miðbik
fyrri hálfleiks, Pólverjarnir þó aldrei langt undan, og þannig
verður þetta síðan út leikinn, Pólverjar munu komast yfir í seinni
hálfleik, en strtákarnir eru búnir að byggja upp mikinn karakter og
flott sjálfstraust og þeir síga bara aftur framúr. Ísland
vinnur með 3 mörkum, en ég hef ekki hugmynd um hvort þetta
verði hraður eða hægur leikur. Ef ég þyrfti að skjóta á tölur, þá
segði ég 30-27 fyrir strákana okkar. Svo er bara spurning hvort ég
sé nokkuð að vanmeta Pólverjana ???
Ég get reyndar ekki horft á leikinn, er að fara að keppa í
reykjavíkurmótinu í fótbolta, þannig að það gæti haft áhrif á
hjátrúna, kanski verð ég líka að horfa á leikinn, sem er ekki gott
því ég missi væntanlega líka af leiknum á laugardaginn við
Slóvena...
En engu að síður...
ÁFRAM ÍSLAND !!!